þingleg meðferð frumvarps um veiðigjald.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og fagna því auðvitað ef rangt var eftir henni haft og hún styður það og virðir það að málið sé á forræði þingsins. En þá óska ég bara eftir því að þeirri þinglegu vinnu sé sýnd örlítið meiri virðing í orðræðu stjórnarliða og hæstv. ráðherra, sem mér hefur fundist skorta á. Það getur líka ekki bara skipt engu máli um hvaða mál er að ræða og hversu umfangsmikið það er og hvað er undir; hér er það fjöregg þjóðarinnar sem þarf bara að skoða út frá hinum ýmsu þáttum.
Mig langar þá í minni seinni spurningu að spyrja hvort hún sé sátt við að réttmætar áhyggjur hafi ekki verið teknar til nægilegrar skoðunar, hvort það hafi verið skoðað af lögfræðingum, stjórnskipunarfræðingum, hvort það sé brot á stjórnarskrá — því við erum væntanlega sammála um gildi stjórnarskrárinnar okkar í okkar ágæta ríki — þessi tenging við Noreg (Forseti hringir.) og hvernig fyrirhugaður skattur er lagður á varðandi þá tengingu. Hvort það sé algjörlega kýrskýrt að þar sé ekki um brot á stjórnarskrá að ræða.