þingleg meðferð frumvarps um veiðigjald.
Forseti. Aftur fagna ég fyrirspurninni og ég fagna henni sérstaklega vegna þess að hún gefur einmitt færi á að lýsa því nákvæmlega hvernig samráðið hefur verið. Eftir að málið fer í samráð, áður en það kemur til kasta þingsins, komu fram raddir um að einhverjar áhyggjur væru varðandi þetta. Ráðuneytið leitar til færustu sérfræðinga á þessu sviði og taldi óumdeilt að þetta stæðist þau ákvæði stjórnarskrárinnar sem hér er vísað til en lagði jafnframt til að kaflinn í greinargerð frumvarpsins væri þéttur sem var og gert. Þannig að: Já, þetta er nákvæmlega dæmi um hverju samráð hefur skilað.
Varðandi virðingu þingsins þá legg ég til að hv. þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sem og aðrir stjórnarandstöðuþingmenn líti mögulega í eigin barm þegar að því kemur.