156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

útreikningar Skattsins á áhrifum veiðigjalds.

[11:32]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Svona í ljósi þess að virðulegur atvinnuvegaráðherra var ekki með orð sín alveg á hreinu þá skal ég reyna að aðstoða hvað minnið varðar. Hæstv. ráðherra sagði í viðtali að það væri fráleitt að það kæmu til málamiðlanir hvað málið varðar. Það eru auðvitað skilaboð til þingsins, stimpilpúðaskilaboðin enn einu sinni sem við höfum séð svo oft undanfarið. Það að ráðherra lýsi því yfir að það sé fráleitt að gera málamiðlanir segir það eitt að það verða engin samtöl sem skipta efnislega máli hvað framvindu málsins varðar milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Það er málamiðlunin. Málamiðlun milli stjórnarflokka er allt annars eðlis.

En það sem mig langar til að spyrja hæstv. atvinnuvegaráðherra út í er að nú fékk atvinnuveganefnd í gærkvöldi tölur frá Skattinum sem draga fram það sem marga hefur grunað býsna lengi, að það hafi ekki tekist vel til hjá ráðuneytinu með útreikning undirliggjandi gagna og talna sem leiða fram veiðigjaldið eins og það mun reiknast samkvæmt frumvarpinu eins og það liggur fyrir. Nú hefur hæstv. ráðherra orðið vitni að því að því hefur verið hafnað í atvinnuveganefnd að fá Skattinn til að fara yfir þessar tölur eins og þær liggja fyrir. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað telur ráðherrann að hafi orsakað það að svona illa tókst til hvað útreikning áhrifa málsins varðar hjá ráðuneytinu í byrjun? Hver er afstaða hæstv. ráðherra til þess að atvinnuveganefnd fái svigrúm til að glöggva sig á þessum tölum með þeim aðila sem eru í bestum færum til að reikna út áhrif frumvarpsins eins og það liggur fyrir?