útreikningar Skattsins á áhrifum veiðigjalds.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir fyrirspurnina. Hún er eiginlega tvíþætt. Ég ætla að leyfa mér að segja, af því að ég tek þetta til mín þar sem verið er að halda því fram að ég sé að hafa áhrif á þingleg störf, að þegar ég er spurð hvort það komi til greina að ráðuneytið breyti frumvarpinu þá segi ég nei. Málið er í þinglegri meðferð. Ég hef sagt og ítreka og ég þarf ekki að segja það, það er fráleitt að standa hér fyrir fullum sal kjörinna fulltrúa á þingi Íslands og ég sé að lýsa því yfir að ég sem ráðherra hef ekki slíkt vald. Ég mun ekki skipta mér af því hvernig þingið afgreiðir málið. En ég get sagt út frá mér að þessar málamiðlanir, sem fyrst og fremst fólust í því að hætta við málið, komu ekki til greina af minni hálfu.
Varðandi seinni spurninguna sem lýtur að aðkomu Skattsins þá veit ég að fulltrúar ráðuneytisins fóru vel yfir málið á fundi atvinnuveganefndar í fyrradag eða í gær og skýrðu það. Það hefur verið samtal ráðuneytisins við þessar stofnanir sem koma að útreikningi veiðigjalds, Fiskistofu og Skattinum. Það kemur í ljós að Skatturinn var ekki með upplýsingar frá Fiskistofu, sem hefði verið rétt af stofnuninni að afhenda til að reikna út veiðigjaldið, m.a. vegna þess að slíkt krefst mikillar yfirlegu. Það er alla jafnan gert á haustin þegar útreikningurinn fer fram og lagt er mat á málið. En við höfum farið vel yfir málið. Atvinnuveganefnd öll er með þær upplýsingar og hefur hitt fulltrúa ráðuneytisins. Ég hef fengið þær upplýsingar að það muni leiða til ákveðinna breytinga. Ráðuneytið hefur lagt til ákveðnar breytingar til að koma í veg fyrir þann misskilning sem lýsti sér í nálgun Skattsins. Vera með skýrara orðalag í frumvarpinu sjálfu. Það leiðir til þess að útreikningurinn verður nær þeim efri mörkum sem talað var um. Auðvitað er þetta alltaf bara mat. Það var talað um ákveðið mark í frumvarpinu, þetta er nær efri mörkum, og ég hef heyrt að meiri hlutinn muni mögulega leggja til breytingar sem jústera það, ef ég má nota það orð, að einhverju leyti. Meira veit ég ekki. Eins og (Forseti hringir.) hv. þingmaður veit er málið inn í atvinnuveganefnd en kannski ættu menn að halda í sér með hneykslunina yfir því að þinginu sé ætlað að vera stimpilpúði þar til þeir sjá hvað meiri hlutinn hyggst gera.