útreikningar Skattsins á áhrifum veiðigjalds.
Forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er auðvitað áhugavert að atvinnuvegaráðuneytið hafi verið að grautast í útreikningum Skattsins eftir að mjög einföld beiðni kom frá atvinnuveganefnd þess efnis að áhrif frumvarpsins eins og það liggur fyrir yrðu reiknuð út. Hér ýjar hæstv. ráðherra að því að Skatturinn hafi misskilið einhvern hluta málsins. Blasir þá ekki við að ráðherrann styðji við þær óskir stjórnarandstöðufulltrúa í hv. atvinnuveganefnd að Skatturinn fái að koma fyrir nefndina og þá í sjálfu sér verja hendur sínar hvað það varðar að hafa misskilið málið og þá reiknað út frá röngum tölum? En tölurnar í frumvarpinu endurspeglast ekki í þeim gögnum sem nefndarmenn fengu send til sín í gær. Þetta verður að leiða í jörðu. Við verðum að átta okkur á hvar þetta misræmi liggur. Það er ekki boðlegt að setja þingmenn í þá stöðu að þurfa að afgreiða málið út úr nefnd án þess að þetta sé alveg kristaltært. Því spyr ég hæstv. ráðherra hvort (Forseti hringir.) hún leggist ekki á árarnar með okkur stjórnarandstöðuþingmönnum í nefndinni hvað það varðar að Skatturinn komi fyrir nefndina og gerir þá grein fyrir í hverju misskilningur stofnunarinnar fólst, ef einhver var, og þar fram eftir götunum.