útreikningar Skattsins á áhrifum veiðigjalds.
Frú forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Ég ætla að leyfa mér að leiðrétta mig aðeins, ég er ekki að tala um stimpilpúða heldur stimpil. Það var íslenskufræðingur sem skammaði mig fyrir þetta. Gögn Skattsins, eftir samtöl við ráðuneytið og Fiskistofu, voru uppfærð. Það eru þau gögn sem hv. atvinnuveganefnd er með. Ég treysti þinglegri meðferð. Ég treysti meiri hluta og ég ætla að leyfa mér að treysta minni hluta til að fara vel yfir það meirihlutaálit, eða það nefndarálit eftir atvikum, sem mun birtast og fela í sér þessi samtöl og þær leiðréttingar sem hafa verið gerðar. Svo einfalt er það.
Hv. þingmaður spyr hvort ég leggist á árarnar með minni hlutanum. Ég hef sjaldan verið fjær því að leggjast á árar með minni hlutanum en ég er akkúrat í þessu máli heilt yfir. Ég trúi því og treysti að verklagið sé gott. Ég hef auðvitað fylgst með því utan frá. Ég veit að upplýsingagjöfin frá ráðuneytinu og stofnunum hefur verið góð. Ég hlakka til að sjá þetta meirihlutaálit og þær breytingar og vona að þær breytingar sem ráðuneytið leggur til skili sér inn í textann og að þær breytingar sem meiri hlutinn leggur til séu byggðar á þeim gögnum sem hér er verið að tala um.