víxlverkun örorkugreiðslna.
Frú forseti. Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp er varðar víxlverkun örorkugreiðslna. Það hefur komið fram í umsögnum að frumvarpið sé jafnvel illa undirbúið og tefli jafnvel á mörkum eignarréttarákvæðis stjórnarskrárinnar. Samkvæmt umsögnum helstu hagsmunaaðila er frumvarpið sagt fela í sér beina fjárhagslega tilfærslu á milli kynslóða og stétta. Hér er verið að taka fjármuni af einum hópi til að afhenda öðrum. Með öðrum orðum: Það sem ríkissjóður hættir að greiða í gegnum jöfnunarframlagið á að koma úr vösum verkafólks og eldri borgara.
Við í Framsókn styðjum vissulega bætt kjör öryrkja og viljum tryggja réttláta þátttöku þeirra í samfélaginu. Það er hins vegar leiðin að markmiðinu sem við gagnrýnum. Áhrifin geta numið allt að 35 milljörðum kr. Þeir lífeyrissjóðir sem bera þyngstu örorkubyrðina, eins og Stapi á Norðurlandi, kunna að þurfa að lækka réttindi fólks um allt að 7,5%. Þar eru tugþúsundir sjóðfélaga, m.a. í sjávarútvegi, matvælaframleiðslu, sem hafa greitt til sjóðsins í áratugi. Alhæfingu í greinargerð frumvarpsins sem segir að haft hafi verið samráð við Landssamband lífeyrissjóða hefur nú verið neitað opinberlega. Landssamband eldri borgara segir málið etja mismunandi hópum í samfélaginu saman. Það sem blasir við er að frumvarpið flytur kostnað yfir á sjóðfélaga í gegnum skerðingu á áunnum réttindum, réttindum sem skv. 72. gr. stjórnarskrárinnar njóta verndar sem eignarréttur.
Því spyr ég hæstv. dómsmálaráðherra hvort hún telji að með frumvarpinu sé í reynd um að ræða eignaupptöku á réttindum sjóðfélaga sem brýtur gegn eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar.