víxlverkan örorkugreiðslna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna og árétta að ég er dómsmálaráðherra en ekki fjármálaráðherra. Ég hygg að það sé enginn ráðherra sem stundar það að leggja fram frumvarp í þeim tilgangi að brjóta stjórnarskrá. Það er a.m.k. liðin tíð að slík vinnubrögð séu tíðkuð hér. Það er stef í þessu frumvarpi að jöfnunarframlagið komi til móts við þær áhyggjur sem hv. þingmaður er hér að reifa; maður hefur heyrt þetta stef, áhyggjur af því að fólk flykkist á örorku til að hagnast á því, en það er kannski ekki ástæða til að ætla að svo sé.
Frumvarpið er ágætlega undirbyggt. Ég hef auðvitað ekki greint það í þaula, á í fullu fangi með að koma mínum frumvörpum áfram hér í þingsal og bind vonir við að það takist þrátt fyrir tafaleiki stjórnarandstöðu. Mín fyrstu viðbrögð við þessu máli eru þau að ég tel að full ástæða sé til að treysta vinnubrögðum í þessu máli og hef ekki ástæðu til að ætla annað.