156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

víxlverkan örorkugreiðslna.

[11:43]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ástæðan fyrir því að ég beini fyrirspurn minni til hæstv. dómsmálaráðherra er að hér er verið að spyrja hreinlega um eignarrétt og brot á stjórnarskrá. (Dómsmrh.: Ég var að svara …) Ég verð að lýsa vonbrigðum yfir því að ráðherra skuli ekki svara einfaldri spurningu um hvort frumvarpið feli hreinlega í sér eignaupptöku. Við höfum í höndunum umsagnir um 35 milljarða kr. tilfærslu og skýringu sem byggist á því að skerða þurfi réttindi annarra til að standa undir útgjaldaaukningu ríkisins. Þá er spurningin ekki hvort þetta gæti verið eignaupptaka heldur hreinlega hvort það hafi verið ætlunin. Ef það er vilji þessarar ríkisstjórnar að ryðja út lagafrumvörpum í nafni verkstjórnar, frumvörpum sem skerða lífeyrisréttindi verkafólks í beinni andstöðu við grunnréttindi fólks í landinu, þá er illa fyrir okkur komið. Ég spyr því að nýju: Telur hæstv. ráðherra að það sé í samræmi við jafnræði og 72. gr. stjórnarskrárinnar að gera kjarabætur hjá einum hópi með því að skerða áunnin réttindi verkafólks og eldri borgara?