156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

víxlverkun örorkugreiðslna.

[11:44]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég átta mig á því að stjórnarandstaðan hér er illa stemmd vegna þess hvernig mál eru hér að spilast með veiðigjöld. Það er auðvitað algerlega óþolandi að menn séu að leika sér að því að koma hingað upp og væna ráðherra ríkisstjórnarinnar um að brjóta stjórnarskrá vitandi vits. Þetta er bara slík óhæfa að það er með algerum ólíkindum. (Gripið fram í.) Þú ert væna ráðherra hér um að brjóta stjórnarskrá vitandi vits. Mig langar til að segja: (Gripið fram í.) Kanntu ekki að skammast þín? [Háreysti í þingsal.] Kanntu ekki að skammast þín? (Gripið fram í.)

(Forseti (ÞSv): Forseti biður hæstv. ráðherra að gæta orða sinna. Forseti biður líka um að ræðumaður fái hljóð. Svo held ég að það væri ágætt að allir önduðu í kviðinn hér í þessum sal.)