156. löggjafarþing — 60. fundur, 13. júní 2025.
embætti lögreglustjóra á Austurlandi.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir hennar svar. Það er ánægjulegt að loksins eigi að fara að auglýsa eftir lögreglustjóra á Austurlandi. Mig langar að spyrja: Hvað var það sem tafði þetta mál frá því að að fyrrverandi lögreglustjóri var skipaður sem forstjóri Mannréttindastofnunar í byrjun apríl? Af hverju hefur það tekið svona langan tíma að auglýsa eftir lögreglustjóra?