156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

embætti lögreglustjóra á Austurlandi.

[11:48]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Ég tel nú að þetta sé ekkert óskaplega langur tími. Það hefur verið settur lögreglustjóri í þessu embætti á meðan. Auglýsingin er að fara út. Það stendur til að skipa. Við vöndum til verka. Ég er mjög ánægð með það sem dómsmálaráðherra að finna hve ég nýt góðs stuðnings innan ríkisstjórnar og af hálfu þings um þau markmið okkar að efla löggæslu. Á fyrstu sex mánuðunum veittum við lögreglustjórum landsins heimild til þess að fjölga lögreglumönnum um 50 yfir landið allt. Við höfum tryggt fjármögnun í fjárauka til þess að halda sérstakt nýliðanámskeið í sérsveit. Þessi auglýsing er að fara út. Ég bind miklar vonir við að það verði áhugi á stöðunni enda kraftmikið og spennandi embætti. Ég sé að það er aukinn áhugi á löggæslustörfum, sem birtist m.a. í því að í sögu Íslands hafa aldrei fleiri sótt um nám í Lögregluskólanum. En auglýsingin er að fara út og ég hlakka til að fylgjast með framhaldinu.