afstaða innviðaráðherra til bókunar 35.
Virðulegur forseti. Í gær var bókun 35 rædd fram á nótt. Það kom fram í nokkrum ræðum hæstv. ráðherra, Eyjólfs Ármannssonar, að afstaða hans gegn bókun 35 væri alveg skýr. Þannig var það á síðasta kjörtímabili og mér þótti ráðherrann tala af skynsemi þá. Það er góður eiginleiki að geta skipt um skoðun en mér skilst að það sé ekki endilega málið í tilfelli hæstv. ráðherra. Það kom nefnilega fram í sömu umræðu í nótt að ráðherrann sagðist enn á móti; hann teldi málið enn brjóta á stjórnarskránni en hann ætlaði engu að síður að samþykkja málið því að það væri í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.
Í fyrsta lagi langar mig að benda hæstv. ráðherra á að þetta er ekki í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, alla vega ekki þeim sem er opinber. Því spyr ég ráðherrann beint: Telur hann bókun 35 brjóta gegn stjórnarskránni og ætlar hann að samþykkja bókun 35?