156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

afstaða innviðaráðherra til bókunar 35.

[11:51]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Í greinargerð frumvarps um lögfestingu bókunar 35 kemur fram að 3. gr. EES-laganna hafi verið sett með það að markmiði að innleiða skuldbindingar samkvæmt bókun 35 við EES-samninginn. Bókun 35 er því innifalin í núgildandi lögum, sem er 3. gr. EES-laganna. Þetta hefur verið mín sannfæring, að 3. gr. EES- laganna tryggði hvað Ísland varðar einsleitni laga á innri markaði EES-svæðisins, sem við höfum verið aðilar að í meira en 30 ár. Íslandi hefur gengið vel í EES-samstarfinu, samstarfi sem ég styð heils hugar. Ég hef verið þeirrar skoðunar að EFTA-dómstóllinn ætti að útkljá í samningsbrotamáli ágreining um hvort 3. gr. EES-laganna væri fullnægjandi fyrir Ísland til að tryggja einsleitni reglna á EES-svæðinu.

Málið mun nú með tímanum fara fyrir Hæstarétt Íslands. Það er Hæstiréttur Íslands sem kveður upp úr um það hvort íslensk lög brjóti stjórnarskrána eða ekki; ekki einstaka þingmenn. Hlutverk Hæstaréttar er einnig að túlka fullveldi Íslands í dómaframkvæmd sinni. Ég ber mikla virðingu fyrir Hæstarétti Íslands og treysti niðurstöðum hans um hvað séu rétt lög í landinu. Sannfæring mín liggur í stefnumálum Flokks fólksins og sannfæring mín liggur líka í stefnumálum ríkisstjórnar Kristínar Frostadóttur, að þau nái fram að ganga og þau markmið sem sett voru í stjórnarsáttmálanum, skýr markmið sem eru mjög til heilla fyrir íslenskt samfélag. Ég samþykkti málið út úr ríkisstjórn á sínum tíma og samþykkti það líka út úr þingflokknum á sínum tíma til þinglegrar meðferðar.