156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

afstaða innviðaráðherra til bókunar 35.

[11:52]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Þetta lá nú allt fyrir hérna á síðasta tímabili líka og ég held að hann hafi gleymt að svara: Ætlar hann að samþykkja bókun 35? Hann er greinilega í einhverjum vandræðum með þetta og þetta var ágætisyfirferð. (Gripið fram í.) — Ég náði ekki hvað hæstv. ráðherra er að segja hérna en ég ætla að snúa mér að öðru.

Þessi ríkisstjórn hefur lagt fram fullt af frumvörpum um skatta- og gjaldahækkanir og þau virðast flest eiga það sameiginlegt að beinast gegn þeim sem síst mega við því. Áttar hæstv. ráðherra Flokks fólksins, Eyjólfur Ármannsson, sig á því? Og ég tek dæmi: Þau beinast gegn fyrstu kaupendum íbúða og þeim sem eiga minnst eigið fé. Skattarnir beinast gegn tekjulægri aðilum í samböndum. Þeir beinast gegn minni fjárfestum og svo núna eru eldri borgarar látnir greiða hækkun greiðslna til öryrkja. Ég spyr hæstv. ráðherra í ljósi þess að einnig bitnar kílómetragjaldið á þeim sem eiga minnstu og eyðslugrennstu bílana, og það (Forseti hringir.) kemur aldeilis inn á borð hjá hæstv. ráðherra: Er hæstv. ráðherra til í að beita sér gegn því (Forseti hringir.) að kílómetragjaldið fari hér inn í óbreyttri mynd fyrst þetta bitnar helst á þeim sem síst mega við því?