156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

afstaða innviðaráðherra til bókunar 35.

[11:54]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegi forseti. Varðandi kílómetragjaldið þá var það skoðað sérstaklega, við áttum sérstaka fundi um það, fulltrúar Flokks fólksins í ríkisstjórn, hvort kílómetragjaldið bitnaði verst á þeim sem hafa minnstu tekjurnar í landinu, einnig hvort kílómetragjaldið myndi bitna á fólki á landsbyggðinni. Svo er ekki. (Gripið fram í: Það er rangt.) Við erum búin að fara yfir þetta margoft. Það er búið að skoða þetta alveg sérstaklega. Við gagnrýndum frumvarpið á sínum tíma, síðasta kjörtímabili, þetta væri skattur gegn landsbyggðinni og skattur á tekjuminni. Svo er ekki. Núna eru tekin gjöld í gegnum bensíngjald. Það þýðir það að þeir sem keyra mest, eyða mestu bensíni, borga hæstu bensíngjöldin. Það verður nákvæmlega sama með þetta, þeir sem keyra flesta kílómetra munu borga mesta kílómetragjaldið. Það er þannig líka í því sem lýtur að þyngd bifreiðanna.

Varðandi önnur atriði í fyrirspurn hv. þingmanns þá er á það að benda að núna erum við í miklu átaki í húsbyggingum og við munum standa vörð um eldri borgara í landinu. Við munum standa vörð um hagsmuni öryrkja og aldraðra og fátæks fólks í landinu. Við munum standa vörð um hagsmuni sjávarbyggða í landinu. (Forseti hringir.) Til þess erum við í ríkisstjórn.