framkoma ráðherra á þingfundum.
Frú forseti. Mig langaði til þess að kom hér upp og beina því til forseta að hún ræði kannski við hæstv. ráðherra varðandi framkomu hér við þingmenn í þessum þingsal. Hér erum við að koma fram í óundirbúnum fyrirspurnum, beinum venjulegum spurningum til ráðherra sem við óskum jú, vissulega eftir svörum við. Hér er bara hreytt í okkur, mikil vanvirðing sýnd þá sérstaklega gagnvart þingmönnum stjórnarandstöðunnar. Ég ætla alveg að sýna því skilning ef hæstv. ráðherrar eru eitthvað stressaðir. Við finnum að það örlar á smá stressi hjá þeim og það er bara allt í lagi. En við þurfum samt að vera kurteis við hvert annað. Það er lágmark. Ef við vísum bara til eldhúsdagsumræðunnar þar sem ráðherrabekkurinn hér var flissandi og sýnandi alls konar geiflur í svipbrigðum, sem var reyndar bara til skammar fyrir Alþingi að mínu mati a.m.k.., þá vil ég bara beina til hæstv. forseta að hún taki kannski aðeins samtal við ráðherrabekkinn og taki þau jafnvel kannski bara í smá kennslustund í hvernig við komum fram við hvert annað hér í þessum þingsal.