framkoma ráðherra á þingfundum.
Frú forseti. Það er sláandi að það virðist sem svo að hæstv. ráðherrar viti ekkert hvaða frumvörp þau eru að leggja fram, því að bara í þessum stutta óundirbúna fyrirspurnatíma þá kom það skýrt í ljós. Þau vita ekki hvaða áhrif kílómetragjaldið hefur. Þau vita ekki hvaða áhrif — ja, ég verð eiginlega vitna beint í ráðherrann. Hæstv. dómsmálaráðherra sagði áðan að við hefðum áhyggjur af fólk myndi flykkjast á örorku. Ég held að hæstv. ráðherra ætti að lesa umsagnir í því máli sem þá var um rætt og ég held að mögulega ætti líka hún að tala við nefndarmenn vegna þess að það er nefnilega einmitt tilfellið, að það eru áhyggjurnar. Ég ætla líka að fá að nefna það að hæstv. ráðherra talaði hér um að það væri samasemmerki milli þess að skrolla í símanum og að geta ekki hlustað. Ég bendi fólki bara á að horfa á ráðherrabekkinn í óundirbúnum fyrirspurnum og þegar við erum að tala, því að fá fólk yfirleitt í símanum. Ég vissi ekki að það væri vegna þess að fólki þætti svo óþægilegt að hlusta. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)