framkoma ráðherra á þingfundum.
Virðulegur forseti. Ég kem hér upp til að gera alvarlegar athugasemdir við þann skort á háttvísi sem hæstv. dómsmálaráðherra, umfram aðra hér í þessum sal, hefur sýnt hér ítrekað í ræðustól. Ég vil benda á það að þegar hæstv. ráðherrar koma hingað undir þessum dagskrárlið, óundirbúnum fyrirspurnum, þá er þeim ætlað að svara fyrirspurnum þingmanna. Það er ekki hægt að gera athugasemdir við það ef tilteknir ráðherrar hafa í einstökum tilvikum ekki svör á reiðum höndum. Þá er ekkert einfaldara en að segja það bara hér í ræðustól. Ég geri ekki kröfu til þess að ráðherrar hafi svör á reiðum höndum við öllum þeim fyrirspurnum sem koma hingað. Það kann að vera svo. En hæstv. dómsmálaráðherra hefur, í stað þess að viðurkenna vanmátt sinn við einstaka fyrirspurnir hér, í stað þess að viðurkenna að hún hafi ekki svör, hér ítrekað hreytt í þingmenn, neitað að svara, snúið út úr og í einhverjum tilfellum farið síðan stuttu síðar og svarað fjölmiðlum því að hún hafi ekki svör á reiðum höndum í stað þess að viðurkenna það hér gagnvart þingheimi. Ég geri alvarlegar athugasemdir við þessa framkomu sem hún bætti síðan í (Forseti hringir.) með því að bíta höfuðið af skömminni og koma hér og ítrekað endurtaka smánaryrði í garð hv. þingmanns hér í þessum þingsal.