Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[12:50]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Maður þarf aðeins að reyna að koma sér í takt eftir að hafa verið hér í umræðu til að ganga þrjú í nótt en ég ætla að reyna að halda áfram þar sem frá var horfið. Því hefur verið haldið fram hér í umræðunni og svo sem hjá þeim sem tala fyrir málinu, bæði í greinum og viðtölum, að málið sé fyrst og fremst tæknilegs eðlis, það skipti í raun litlu máli og margt í þá veruna. Það er verið að reyna að teikna upp þá mynd að hér sé verið að gera úlfalda úr mýflugu með þeim áhyggjum sem við þingmenn Miðflokksins, sérstaklega, og margir aðrir sömuleiðis, höfum af þeim áhrifum sem verða af innleiðingu þessa frumvarps eins og það liggur hér fyrir. Málið er nefnilega ekki bara tæknilegt, þetta er prinsippmál sem snýr að fullveldi Íslands, framsali valds og fleiru því tengdu. Staðan er sú að stjórnarskráin er eins og hún er og í þessum efnum hefur ítrekað komið upp umræða um að þörf sé á að breyta stjórnarskrá með tilliti til þess að heimilt sé að ganga til meira framsals en stjórnarskráin heimilar. Það má t.d. nefna að Norðmenn eru með rýmri heimildir í þessum efnum en þá er það líka eins og stjórnarskrá þeirra er og þannig eru reglurnar. Þær eru ekki þannig hér á Íslandi. Þess vegna var það fyrirkomulag sem nú er við lýði hvað innleiðingu bókunar 35 varðar eins og það er. Það var, eins og ég hef komið inn á hér áður, ákvarðanatökuástæða þegar málið var samþykkt sem lög nr. 2/1993, ef ég man rétt.

Síðan er þetta sjónarmið sem haldið er fram, að þetta skipti í raun litlu máli, það verði engin raunveruleg breyting. Þá skulum við bara sleppa þessu. Þá skulum við bara sleppa þessu og leyfa stjórnarskránni að njóta vafans. Ef þetta skiptir svona litlu máli bendir það í öllu falli til þess að áratugum saman hafi þetta verið efnislega rétt og að innleiðingin eins og hún er hafi verið ásættanleg miðað við regluverkið og eftirlitsstofnanirnar úti, því að lengstum voru engar athugasemdir gerðar við þetta.

Þessi mikli áhugi og eftirfylgni gagnvart því að hér verði breytt um fyrirkomulag varðandi innleiðingu bókunar 35 er nýtilkominn. Mig grunar að þetta sé dálítið persónutengt gagnvart því hverjir sátu á hinum ýmsu póstum fyrir hönd Íslands á tilteknu tímabili. Það er auðvitað eitthvað sem við, löggjafarvaldið, getum ekki látið stýra verkefnum okkar og ákvörðunum. Ég held að þessi asi sem nú virðist vera á málinu, að nú skuli ræða þetta mál með öllum tiltækum ráðum, jafnvel þó að heill skafl af málum sem ríkisstjórnin raunverulega vill koma í gegn tefjist þá og eftir atvikum rýrni eitthvað að umfangi. Það skal öllu fórnað til að þetta mál, sem er lýst sem svo litlu og tæknilegu, komist í gegn. Hvers vegna þetta verklag, ef það er staðan? Hvers vegna að ýta umræðunni hér inn í lokahluta þingstarfa? Dagurinn í dag er dagurinn sem þinglok voru áætluð, föstudagurinn þrettándi. Það er eitthvað undarlegt við þetta og það bendir allt til þess að stjórnarliðar hafi lítinn áhuga á að tala fyrir málinu, verja það og segja: Heyrðu, staða okkar verður betri vegna þessa og þessa. Það eru fáir sem koma hér og halda slíkum sjónarmiðum fram. Ef það væri einhver sannfæring í stjórnarliðum hvað málið varðar þá stæðu menn hér staffírugir og útskýrðu afstöðu sína og sannfæringu en við finnum ekki fyrir neinu slíku. Því held ég að þetta atriði, þessi fyrsti punktur minn hér í dag, sýni að við ættum algjörlega að ýta þessum sjónarmiðum til hliðar, að þetta sé eitthvert lítið, tæknilegt mál sem skipti í raun litlu máli. Staðreyndin er bara allt önnur. Málið er prinsippmál sem rekur hornin í stjórnarskrána og þeir sem halda því fram að slík mál séu smámál og tæknileg verða auðvitað bara að taka ábyrgð á sínum orðum og velja þau sjálfir. Þó blasir við að það er ekki staðreyndin. (Forseti hringir.)

Virðulegur forseti. Þú gerir þér vafalaust í hugarlund að ég hef ekki lokið máli mínu þannig að ég vil biðja virðulegan forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá.