156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

ráðning nýs skrifstofustjóra Alþingis.

[13:32]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Hv. alþingismenn. Áður en gengið er aftur til fundar vill forseti tilkynna að á fundi forsætisnefndar nú í hádeginu var samþykkt að ráða Sverri Jónsson, sviðsstjóra hjá Skattinum, í embætti skrifstofustjóra Alþingis. Sverrir Jónsson tekur við embættinu 1. ágúst næstkomandi. Þá lætur jafnframt af störfum núverandi skrifstofustjóri, Ragna Árnadóttir. Henni verða þökkuð góð störf síðar en Sverrir er boðinn velkominn til starfa og vonir bundnar við gott og farsælt samstarf við hann.