Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég biðst afsökunar á að hafa ekki sinnt hlutverki mínu um að upplýsa að hv. þingmaður Sigríður Andersen væri örsnöggt úr húsi. Mig langar hér í þessari ræðu minni að koma stuttlega inn á sjónarmið er varða þau bréf sem send voru í ráðherratíð þáverandi hæstv. utanríkisráðherra, núverandi hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, með megináherslu á bréf sem er sent til ESA 30. apríl 2021 og er upp á einar 24 bls. Það fékkst afhent eftir að mælt var fyrir þessu máli í febrúar síðastliðnum, eftir nokkurra ára þrautagöngu hvað það varðar að fá gögnin birt. Þau höfðu verið kynnt í hv. utanríkismálanefnd en bundin trúnaði þannig að þau gerðu okkur þingmönnum, sem erum ekki fulltrúar í utanríkismálanefnd, í raun lítið gagn og sömuleiðis í sjálfu sér hv. þingmönnum sem sitja í utanríkismálanefnd í ljósi þess trúnaðar sem um plöggin gilti. Þarna er með býsna afgerandi hætti haldið til haga vörnum Íslands gagnvart þeirri kröfu að innleiðing reglnanna sé útfærð með öðrum hætti en gert var 1993.
Ég hef ítrekað spurt hér í þessum sal hvað þeir sem tala fyrir málinu telji að hafi úrelst af þeim rökum sem sett voru fram í þessum bréfaskriftum frá 25. apríl 2020–2030, með áherslu á bréfið þarna í apríl 2001. Ég hef ítrekað spurt hvað af þeim rökum sem þarna voru sett fram til varnar sjónarmiðum og hagsmunum Íslands hafi úrelst. Um þetta hefur verið spurt árum saman. Ég fékk í fyrsta skipti svar sem var nú samt efnislega kannski ekki sérstaklega umfangsmikið eða haldmikið. Það var vísað hér til þess hæstaréttardóms sem mikið hefur verið ræddur og varðar fæðingarorlof. Það væri svona það mál sem hefði snúið þessu öllu á haus sem stenst varla skoðun þegar sá dómur er lesinn. Það er eitthvert hálmstrá sem gripið hefur verið til og ég óttast að það hálmstrá verði svolítið þeirrar gerðar sem manni virðist. Ég er ekki að draga úr því að sumir þingmenn hafi gripið til þess í góðri trú, þ.e. að fyrirvarinn við innleiðingu orkupakka þrjú fæli í sér hald varðandi aðkomu Alþingis að mögulegri lagningu sæstrengs þegar fram í sækir til að flytja rafmagn inn á Evrópumarkað. Nú gæti þetta mál ýtt af stað lagalegum áhrifum sem orsaka það að sá fyrirvari er haldlaus. Mér segir svo hugur að þetta haldreipi eða hálmstrá, ef við köllum það svo, sem hæstaréttardómurinn er þeim sem hafa ekki önnur svör að bjóða gagnvart því hvað hafi úrelst af sjónarmiðum Íslands síðan 2021 í apríl, verði svona svipað loftkennt þegar á reynir.
Af því að ég mun nú augljóslega þurfa að fara í aðra ræðu um þetta efni og mögulega nokkrar vil ég ljúka þessu nú með því að halda til haga gagnrýni á það að þessi gögn hafi ekki verið gerð aðgengileg þingmönnum alveg frá fyrstu framlagningu þessa máls því ef við eigum að geta tekið umræðu eins og við erum að eiga hér þá verðum við að þekkja okkar eigin rök í málinu sem var haldið frá okkur árum saman með algjörlega óskiljanlegum hætti. Það skip er siglt og við skulum ekki ílengjast þar. Þetta hefði þó þroskað þessa umræðu á fyrri stigum við fyrri framlagningar.
Ég vil bara þakka núverandi hæstv. utanríkisráðherra fyrir að aflétta trúnaði af þessum plöggum fyrir okkur þingmenn og sömuleiðis hæstv. fyrrverandi utanríkisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, fyrir að láta vinna þessa vinnu sem er afbragðsvel unnin.
Virðulegur forseti. Það kemur nú væntanlega ekki á óvart að ég óski eftir því að vera settur aftur á mælendaskrá.