Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[13:44]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Nú hefur gefist tími til að glöggva sig nokkuð á þeim gögnum sem komu til nefndarmanna í hv. atvinnuveganefnd í gærkvöldi frá Skattinum og varða útreikning veiðigjalda. Þegar ég ræddi þetta hér við upphaf þingfundar og óskaði liðsinnis virðulegs forseta við að tryggja að Skatturinn fái tækifæri til að koma fyrir hv. atvinnuveganefnd þá var ég búinn að skima þessi gögn og býsna margt þar sem vakti athygli og kallaði fram spurningar. Núna þegar tími hefur hins vegar gefist til að skoða þetta betur þá er eiginlega alveg ótækt annað en að tækifæri gefist fyrir nefndarmenn að eiga samtal við Skattinn milliliðalaust því það blasir auðvitað við að við þingmenn fáum ekki tækifæri til að gera það eftir að málið kemur inn til 2. umræðu eins og upplýst hefur verið um, að áform séu um að taka málið út úr nefnd á aukafundi nefndar á morgun, laugardag. (Forseti hringir.) Ég biðla því aftur til virðulegs forseta um að hlutast til um að þetta verði tryggt.