Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég tek undir ósk hv. þm. Bergþórs Ólasonar varðandi beiðni um að Skatturinn komi fyrir atvinnuveganefnd. Það er greinilegt að þau gögn sem við fengum í gær eru mikilvægt innlegg inn í allt þetta mál og samhengi hluta þannig að það er gríðarlega mikilvægt að nefndin fái þau. Ég ítreka síðan enn á ný ósk okkar um að Byggðastofnun komi líka. Þegar við í atvinnuveganefnd fengum í örskamma stund í morgun heimsókn frá fulltrúum Byggðastofnunar sást að þeir eru með mjög góða umsögn um strandveiðarnar. Byggðastofnun þekkir náttúrlega þau svæði sem munu fara verst út úr þessu máli sem snýr að veiðigjöldunum. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að Byggðastofnun komi til okkar í atvinnuveganefnd og útskýri fyrir okkur hvernig þeim líst á þessa stöðu sem kemur upp vegna þess að við vitum öll að þetta er landsbyggðarskattur sem verið er að leggja á og þetta mun hafa alvarlegar afleiðingar fyrir landsbyggðina.