Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[13:47]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Við komum hér upp, hv. þingmenn í minni hluta atvinnuveganefndar, og erum svo sem aðeins með eitt í huga; að leggja gott til málanna hvað það varðar hvernig við vinnum málin áfram. Mér finnst það mikilvægt og sérstaklega í ljósi þeirra orða sem hafa fallið af mínum vörum um virkilega góð vinnubrögð að hluta til varðandi önnur mál innan nefndarinnar. Ég veit að hv. þm. Eiríkur Björn Björgvinsson, framsögumaður málsins, leggur sig allan fram sömuleiðis varðandi sína framsögu á veiðigjaldamálinu. Okkar hlutverk er að sjálfsögðu að rækja skyldur okkar sem eftirlitsaðila og vera með aðhald með málinu. Það er það eina sem við erum að fara fram á hérna og fyrir það þurfum við bara smá tíma.