Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[13:49]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um fundarstjórn):

Forseti. Ég var undrandi að sjá bókun 35 setta á dagskrá þingsins þegar það lá fyrir að bókunin þyrfti mikla umræðu. Á sama tíma kvartar meiri hlutinn yfir því að hér sé rætt mikið málefni sem er í þinginu, að við tölum of mikið. Nú liggur fyrir að það á að ná veiðigjaldinu út og því langar mig að biðja forseta að hlutast til um það að þetta verði ekki eitthvert leikrit og við séum að ræða bókun 35 sem einhvers konar geymslu þar til þau ná veiðigjaldinu út. Bókun 35 þarf að fá almenna umræðu og henni er hvergi nærri lokið þannig að ég bið forseta að athuga hvað sé í gangi.