Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég vildi bara árétta að þessar upplýsingar frá Skattinum eru ekki bara hvaða gögn sem er inn í þetta mál. Þetta er grundvöllur málsins. Málið snýst um meinta leiðréttingu og þessi meinta leiðrétting virðist síðan vera kolröng, bara rangir útreikningar byggðir á misskilningi. Það að ætla að klára mál sem er kallað leiðrétting með einhverju sem er meingallað er einhver skrípaleikur sem við getum ekki boðið okkur þingmönnum upp á. Þeir þingmenn sem ekki eiga sæti í atvinnuveganefnd verða auðvitað að geta treyst því að samflokksmenn þeirra í nefndinni hafi átt möguleika á að eiga samtal milliliðalaust við þá sem eru að reikna þetta rétt, því að Skatturinn er á endanum sá aðili sem reiknar út veiðigjöldin, krónutölu þeirra hvert ár. Það er ekki boðlegt að almennir þingmenn finni sig í þeirri stöðu (Forseti hringir.) að þurfa helst að glöggva sig á þessum upplýsingum í gegnum nefndarálit meiri hluta. Þannig getur þetta ekki átt að virka hérna hjá okkur.