Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég kem hérna upp til að taka undir með hv. þingmönnum sem hafa komið hér upp. Aðdragandi þessa risastóra máls var að það kemur mjög snögglega inn til umsagnar. Það er gefin vika. Stór hluti af umsögnunum var líka til að kvarta yfir þeim stutta umsagnartíma. Síðan fer málið hér í gegn. Það kemur gríðarlegur fjöldi umsagna. Nú eru að koma inn mál frá skattinum, frá Byggðastofnun, sem verður að ræða. Ríkisstjórn sem gefur sig út fyrir vönduð vinnubrögð og ætlaði að vera svo fagleg og vönduð — nú er búið að kippa dagskrá þingsins úr sambandi. Við höfum allan tímann í heiminum til að ræða þetta. Ég veit ekki hvað liggur á, virðulegur forseti. Eitthvað virðist þó vera óþægilegt fyrir meiri hluta atvinnuveganefndar að ræða af þeim niðurstöðum sem koma m.a. frá skattinum og mögulega Byggðastofnun, eins og það megi ekki ræða það í nefnd. Allt tal um að hér hafi átt að vera svo mikið samráð er bara ekki rétt. Við höfum nógan tíma. (Forseti hringir.) Nokkrir dagar til eða frá skipta ekki máli, virðulegur forseti.