Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[13:54]
Horfa

Snorri Másson (M) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Hér voru í einhverjum skilningi rétt að hefjast afar góðar umræður í gær um bókun 35 þegar fundi var slitið og ánægjulegt að fá að halda þeim umræðum áfram á eftir, að því gefnu að fundi sé ekki skyndilega slitið af ástæðum sem mér eru enn á ný ókunnar. Það var forvitnilegt að einhver benti á að bókun 35, eins mikill og asinn er núna að koma henni í gegn, er ekki vikið að í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ég verð að játa það, virðulegur forseti, að ég hafði ekki alveg áttað mig á því. Mér fannst svona í ljósi ákafans að þá hlyti það að hafa verið gert. Þar felst maður bara á að maður hafi rangt fyrir sér í því hvernig maður mundi það. Það er hins vegar afskaplega forvitnilegur punktur sem vekur upp spurningar um það hverju það sætir að ætla að koma þessu stóra grundvallarmáli í gegn núna í þessum afar knappa ramma sem við höfum þegar menn viku ekki einu sinni að þessu í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar, sem maður myndi halda að væri plagg sem maður gæti horft til þegar kemur að því að reikna sig (Forseti hringir.) svona áfram í þingstörfunum.