Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Það er þetta með bókun 35, það er alveg ótrúlegur asinn sem er á því að koma þessu hérna í gegn, máli sem er ekki einu sinni í stefnuyfirlýsingu eða stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Það er alveg með ólíkindum. Maður bara klórar sér í höfðinu yfir þessum furðulegu áherslum.
Mig langar að taka undir með hv. þm. Bergþóri Ólasyni varðandi Skattinn. Það er stórfurðulegt að það sé ekki hægt að fá hann fyrir atvinnuveganefnd. Síðan langar mig líka að taka undir með hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni varðandi Byggðastofnun. Það er náttúrlega mjög æskilegt að við hana sé átt mjög gott samtal í atvinnuvegaráðuneytinu þar sem þessi risamál snerta landsbyggðina mjög mikið og það þarf að eiga mjög gott samtal við Byggðastofnun. Ef háttvirtur formaður atvinnuveganefndar væri hérna í salnum gæti hann kannski svarað því hvers vegna hvorki er hægt að kalla til Skattinn né Byggðastofnun til að eiga almennilegt samtal við þessa aðila. Ég meina: Hvað er málið? (Forseti hringir.) Af hverju liggur svona á?