Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Það er eitt í heiminum sem er endalaust, það er tíminn og tíminn hleypur ekkert frá okkur, virðulegi forseti. Sólin kemur væntanlega aftur upp á morgun og næsta dag en það virðist vera að einhverjir haldi annað. Alla vega virðist því háttað þannig hjá meiri hlutanum hér á Alþingi um þessar mundir. Ég vil bara minna á það, virðulegi forseti, að mikilvægi þess að gefa sér tíma í jafn stóru, flóknu og áhrifamiklu máli skaðar engan.
Ég minni enn og aftur á það, virðulegi forseti, að það er eitt í þessum heimi sem er endalaust. Það er tíminn.