Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Eins og kom fram í máli hv. þm. Bergþórs Ólasonar áðan er mikilvægt að Skatturinn komi til okkar inn í atvinnuveganefnd og útskýri sín gögn þannig að hægt sé að spyrja út í það sem kom frá Skattinum til nefndarmanna í gærkvöldi. Það er grundvallaratriði í öllu málinu. Skatturinn reiknar veiðigjöldin og við erum að ræða veiðigjöld þannig að það er bara í anda agaðra og góðra vinnubragða að fá slíka lykilaðila fyrir nefndina. Þetta varðar þá grundvallarhagsmuni sem málið snýst um. Í svona stóru máli þar sem við ræðum algjört grundvallarmál fyrir landsbyggðina á næstu árum og áratugum hvað varðar þróun einstakra þorpa og staða þá hljótum við í það minnsta að geta vandað okkur við þá vinnu hér í þinginu, í atvinnuveganefnd. Þetta er ekki flóknari krafa heldur en að fá Skattinn fyrir nefndina svo við getum tekið agaða og góða umræðu þar.