Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:00]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Aðeins aftur vegna orða hv. þingmanns hér áðan, Bergþórs Ólasonar, hvað varðar gestakomur til nefndarinnar í því samhengi að meiri hlutinn vilji ekki að Skatturinn komi þar inn vil ég nefna það sem kom einnig fram í máli hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar: Það er Skatturinn sem reiknar út veiðigjöldin, það er Skatturinn sem reiknar út veiðigjöldin og Skatturinn er kominn með gögn sem sýna fram á að veiðigjöldin eru ekki rétt reiknuð. Niðurstaðan og reikningarnir eru ekki réttir. Þeir byggja á röngum forsendum. Maður hefði haldið að meiri hluti atvinnuveganefndar hefði um leið og þetta lá ljóst fyrir óskað sérstaklega eftir að fá að eiga samtal við fulltrúa Skattsins. En nei, herra forseti, svona gengur það víst ekki fyrir sig hér. Það skal fram, jafnvel þótt það liggi fyrir að forsendurnar séu rangar og upplýsingar um það frá þeim aðila sem sér um að reikna út niðurstöðuna.