Evrópska efnahagssvæðið.
Forseti. Ég kem hérna upp til að vekja athygli á því að í frumvarpi um kílómetragjald hafði Skatturinn fjölmargar ábendingar. Það var tekið tillit til, held ég, flestra ábendinga Skattsins en nú heyrist það í hv. atvinnuveganefnd að Skatturinn megi ekki koma fyrir nefndina. Hverju sætir það? Ég spurði hv. þm. Sigurjón Þórðarson að því áðan hvort hann gæti ekki bara komið hingað upp og svarað því. Hann er ekki búinn að því enn þá. Ég vil þó taka upp hanskann fyrir hann varðandi það að ég veit, og ég heyrði auglýst áðan, að hv. þm. Sigurjón Þórðarson er í viðtali á Útvarpi Sögu núna. Meiri hlutinn, þingmenn, hefur oft tjáð sig í fjölmiðlum en ekki hér inni. Mögulega kemur fram þar hverju sætir. Annars held ég að við þurfum að koma hér aftur í fundarstjórn þegar hann mætir aftur í hús. Ég vil líka benda á það að hann er í viðtali hjá Útvarpi Sögu sem þessi ríkisstjórn hefur ekki séð sér fært að styrkja þótt hún styrki flestalla aðra fjölmiðla en þó bara þá (Forseti hringir.) sem henni eru þóknanlegir.