Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Þórarinn Ingi ræddi hér um tímann og að hann væri það eina sem við ættum endalaust til af. Það er kannski öðrum þræði eðlisfræðileg fullyrðing og erfitt að leggja mat á hana hér undir þessum lið. Það er nú samt svo að tíminn er knappur innan þeirra marka sem við ætlum að setja okkur í þessum störfum. Ég held að áætluð tímasetning þingloka sé að baki, ef mér skilst rétt, búið að taka dagskrána úr sambandi og meiri háttar grundvallarmál til umræðu sem sannarlega þurfa tíma eins og bókun 35, sem varðar sjálft fullveldið, sem varðar sjálfa stjórnarskrána, þannig að það er ekki annað hægt en að klóra sér í kollinum yfir því hvað hæstv. ríkisstjórn nákvæmlega hyggst fyrir með þetta skipulag sem hérna er lagt upp með. Á meðan við höfum ekki aðrar upplýsingar þá höldum við náttúrlega áfram að ræða þetta stórkostlega mikilvæga mál og höfum ákveðinn (Forseti hringir.) tíma til þess.