Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:04]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Þetta er alveg með ólíkindum. Hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir upplýsti okkur hérna áðan um að hv. formaður atvinnuveganefndar væri í viðtali á Útvarpi Sögu. Mögulega upplýsir hann um það þar að hann ætli að boða Skattinn á fund atvinnuveganefndar. Það væri óskandi. Hins vegar er stórfurðulegt að hann hafi ekki komið hér fram og sagt að Skatturinn yrði boðaður á fund nefndarinnar vegna þess, eins og hefur verið margoft minnst á hér áðan, að það er Skatturinn sem reiknar út veiðigjaldið. Það er náttúrlega með ólíkindum og fáránlegt að hann sé ekki fenginn fyrir nefndina. Ég legg því bara að háttvirtum forseta að gera jafnvel hlé á þessum fundi þannig að hægt sé að boða Skattinn á fund atvinnuveganefndar svo hægt sé að leggja öll spilin á borðið og sjá hvernig í öllu þessu liggur.