Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég ætla að halda áfram þar sem frá var horfið í gær og lesa upp ummæli núverandi hæstv. ráðherra, Eyjólfs Ármannssonar. Ég ætla að grípa annars staðar niður, hafa eftir hæstv. núverandi ráðherra, Eyjólfi Ármannssyni, þar sem verið er að ræða frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna. Þetta er frá 5. júní 2024. Það er rúmt ár síðan. Ég vitna hér til Eyjólfs Ármannssonar, núverandi innviðaráðherra, sem var hér áður í stjórnarandstöðu og var þá á móti bókun 35 og taldi hana brjóta í bága við stjórnarskrá, með leyfi forseta:
„Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Bókun 35 brýtur í bága við stjórnarskrána. Bókun 35 takmarkar löggjafarvald Alþingis til framtíðar. Bókun 35 er þannig að þegar innleidd reglugerð sem sett er í íslensk lög frá Brussel verður að almennum lögum munu almenn lög sem eiga uppruna sinn í Brussel vera rétthærri en önnur almenn lög. Við erum því komin með tvo flokka af almennum lögum, annars vegar almenn lög sem eiga uppruna sinn í Brussel og hins vegar almenn lög sem eiga uppruna sinn á Alþingi Íslendinga og í íslensku samfélagi. Þetta brýtur gegn stjórnarskránni.“
Segir hæstv. núverandi innviðaráðherra. Ég held áfram, með leyfi forseta:
„Það eru algerlega klárar línur. Ef þú ætlar að búa til rétthærri flokk innan almennra laga þá verður þú að gera það í stjórnarskránni. Og þetta er ekki lögskýring, þetta er val á því hvað er rétthærri réttarheimild. Stjórnarskráin er rétthærri almennum lögum. Innan flokksins almenn lög er verið að búa til rétthærri flokk sem eru lög sem eiga uppruna sinn í Brussel. Það gengur gegn stjórnarskránni og ég tel að þetta sé algjörlega til óþurftar.“
Nú langar mig að rifja aðeins upp fyrirspurnatímann í morgun. Þá spurði hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir hæstv. innviðaráðherra um afstöðu hans til bókunar 35. Hæstv. ráðherra kom hér upp með skrifað svar og svaraði í raun og veru engu. Hann gat ekki svarað því hvort hann ætlaði að greiða atkvæði með bókuninni en ég geri ráð fyrir því að hann muni leggja sig fram við að vera fjarverandi þannig að enginn muni sjá eða verða vitni að því hvernig hann greiðir atkvæði, þannig að þá vitum við það. En mig langar að halda áfram, með leyfi forseta, og vitna til ummæla núverandi hæstv. innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar:
„Íslendingar hafa verið aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu í 30 ár og það hefur gengið vel. Það eru allir sammála um að það hafi gengið vel. Það var gengið frá þessu vandamáli. Þetta vandamál var afgreitt fyrir 30 árum síðan.“
Fyrir 30 árum síðan, og eigum við ekki bara að virða það? Með leyfi forseta held ég áfram að vitna til hæstv. núverandi innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar:
„Árið 1993 var samið um það að við myndum sættast á að nota 3. gr. laganna um Evrópska efnahagssvæðið þar sem er talað um að við ætlum að túlka íslensk lög í samræmi við EES-samninginn. Það var gert og ég fullyrði það að ef það hefði átt að lögfesta bókun 35 fyrir rúmum 30 árum síðan þá hefði Alþingi Íslendinga ekki samþykkt EES-samninginn.“
Ég vil minna á það, hæstv. forseti, að EES-samningurinn var samþykktur hér í þessum þingsal með 33 atkvæðum gegn 30. Það var nú ekki svo mikill meiri hluti fyrir samningnum. Ég er sammála hæstv. ráðherra, Eyjólfi Ármannssyni, ég dreg í efa að EES-samningurinn hefði verið samþykktur, hefði staðið til að innleiða bókun 35 með þeim hætti sem nú er lagt upp með. Ég held áfram, með leyfi forseta, að vitna til orða hæstv. ráðherra, Eyjólfs Ármannssonar:
„Það eru algjörlega hreinar línur með það. Ég tel að þingmenn Sjálfstæðisflokksins, a.m.k. að hluta til, hefðu ekki sætt sig við bókun 35 vegna þess að hún takmarkar löggjafarvald Alþingis og brýtur þannig gegn stjórnarskránni og þar með fullveldinu.“
Ég vil bara minna á þetta og ítreka að ég er tilbúin til að standa hér eins lengi og þurfa þykir og ræða þetta mikilvæga mál vegna þess að hér er vegið að fullveldi Íslands.
Hæstv. forseti. Ég er ekki búin. Má ég biðja þig að setja mig aftur á mælendaskrá?
(Forseti (KGH): Þú verður að bíða eftir næstu ræðu.)