Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég kem eins og kallaður og hyggst hér víkja aftur að því sem ég vék aðeins að áðan, að það hefði verið bundinn nokkurs konar bráður endir á þingfundinn ágæta hér í gær þar sem maður átti nokkra punkta eftir sem maður vildi fylgja eftir. Í síðustu ræðu minni, að mig minnir, áður en þeim fundi lauk, fór ég sem sagt yfir mjög róttæk sinnaskipti af hálfu ákveðinna stjórnarþingmanna sem orðið hafa í tengslum við bókun 35 og innleiðingu hennar hérna á Íslandi. Sú leið sem er mörkuð núna með frumvarpi hæstv. utanríkisráðherra er að mati sitjandi ráðherra, fleiri en eins í ríkisstjórninni og a.m.k. tveggja úr Flokki fólksins, stjórnarskrárbrot eins og þeir hafa lýst á fyrri stigum. Getur þá verið að sú afstaða hafi breyst að einhverju marki? Það hefur ekki alveg verið skýrt fyllilega að hvaða leyti og jafnvel hvort það hafi hreinlega ekki breyst. Engu að síður vilja menn fara í gegnum þetta.
Hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, Inga Sæland, hélt innblásna ræðu um bókun 35 hér í febrúar 2024. Ég er ekkert að nota þetta tækifæri endilega til að velta mönnum sérstaklega upp úr gömlum ummælum heldur raunverulega er efni þessarar ræðu áhugavert og það er áhugavert innlegg í þessa umræðu. Ég segi það alveg einlæglega að þetta snýst ekki um að velta mönnum upp úr þessu. Ég segi ekki að ég beri virðingu fyrir þeim en ég skil í hvaða stöðu menn eru. Þeir hafa lýst því. Hæstv. ráðherra Inga er í þessari stöðu. Hún segir sem sagt orðrétt í ræðu í febrúar 2024, með leyfi forseta:
„Þá hefur því verið haldið á lofti af einhverjum að innleiðing bókunar 35 myndi alls ekki hafa nein áhrif. Þetta væri í raun bara smá formsatriði. Það er alrangt. Með leyfi forseta,“
segir Inga þá og vitnar í grein Hafsteins Dan Kristjánssonar og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirst þar sem þeir fjalla um þetta. Þá ætla ég, með leyfi forseta, að vitna í þessa fræðimenn sem skrifa og varpa mjög athyglisverðu ljósi á þessa umræðu, um þessa forgangsröðun og hverju við erum í raun að gefa forgang, hvað við erum að kalla yfir okkur með þessu. Þá þurfum við að vitna í þessa grein Hafsteins Dan og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirst. Þeir skrifa, með leyfi forseta:
„Þar sem fyrirhuguð forgangsregla hefur almennt gildissvið, í þeim skilningi að hún tekur til allra innleiddra EES-reglna, hvort heldur samkvæmt meginmáli EES-samningsins, bókunum, viðaukum eða afleiddum gerðum, er hún til þess fallin að hafa töluverð áhrif í íslenskum rétti og réttarframkvæmd heilt yfir verði frumvarpið að lögum. Í því sambandi verður jafnframt að hafa hugfast að grunnreglur EES-samningsins á borð við fjórfrelsisreglurnar eru háðar túlkun EFTA-dómstólsins með hliðsjón af réttarframkvæmd í Evrópurétti.“
Nú er þetta eilítið tyrfinn texti í flutningi en það sem er verið að fjalla um þarna er að forgangsreglan er almenns eðlis þannig að þegar við erum búin að segja að EES-sjónarmiðin, ákvæðin og skuldbindingarnar hafi forgang fram yfir íslensk lög þá er það mjög almennt svið sem á að hafa forgang yfir íslensk lög, m.a. fjórfrelsisinsreglurnar, eins og hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra benti á í sinni ræðu á sínum tíma. Þá held ég áfram að vitna í hennar bara ágætu túlkun á þessu. Hæstv. ráðherra Inga Sæland segir, með leyfi forseta:
„Ég túlka þessi orð greinarhöfunda á þá leið, hvað varðar bókun 35, að verði hún innleidd þá gæti svo farið að fjórfrelsisreglur EES-samningsins myndu öðlast sérstöðu gagnvart öðrum lögum og að lögum yrði ekki beitt ef þau teldust ósamrýmanleg fjórfrelsinu, jafnvel þótt þau lagaákvæði væru skýr samkvæmt orðanna hljóðan. Þannig myndi,“
og hún heldur áfram, að lokum:
„Fyrir þá sem ekki vita þá hafa evrópskir dómstólar náð að túlka fjórfrelsisreglurnar á hreint út sagt ótrúlegan hátt þannig að í þeim felist hinar ýmsu skyldur sem engum hefði dottið í hug við inngöngu í EES árið 1993.“
Þetta segir hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra fyrir rétt rúmu ári. Þetta er bara viðvörun sem ég tel eiga fullt erindi inn í þennan sal, að átta sig aðeins á því hvað er verið að kalla yfir löggjafann með þessu, að veita þessu forgang. Það eru ekki bara einhver einstök ákvæði heldur er það allt heila klabbið, eins og þetta hljómar í meðförum þessara fræðimanna. Mér finnst því mjög umhugsunarvert í þessari umræðu hvað við erum í raun og veru að gera með þessu.