Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:38]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég ætla að halda áfram þar sem frá var horfið í minni síðustu ræðu. Ég ræddi þar þennan árekstur við stjórnarskrá. Ég tel, frú forseti, ekki rétt að orða hlutina þannig að hér sé um stjórnarskrárbrot að ræða því að þetta er ekki orðinn hlutur. Við erum að tala um hvort þetta ákvæði sem er í frumvarpinu gangi hugsanlega í berhögg við stjórnarskrá. Það er það er hið rétta orðalag þegar menn ræða þetta. Stjórnarskrárbrot er ekki orðið fyrr en þetta verður að lögum. Þá er komið ákvæði inn í lög sem brýtur í bága við stjórnarskrá sem þó ekki upplýsist fyrr en dómur gengur í málinu einhvern tímann í framtíðinni þannig að við erum að tala svona inni í framtíðina. Auðvitað verðum við þingmenn þó að gæta okkar verulega og það verður seint lögð jafn þung áhersla á það. Við verðum að gæta okkar þegar við erum hér í þingsal með mál eins og þetta, þar sem margir fræðimenn, fjölmargir þingmenn og fólk úti í samfélaginu benda á að þarna sé ákvæði á ferðinni sem hugsanlega gangi í berhögg við ákvæði stjórnarskrárinnar. Þetta ákvæði stjórnarskrár er ekkert barnaleikfang. Þetta er ekkert barnaleikfang, frú forseti. Við erum að tala um 2. gr. stjórnarskrárinnar sem raunverulega leggur grundvöllinn að lýðveldinu og fullveldi landsins. Ákvæðið hljóðar svo, með leyfi forseta, og ætla ég nú bara að lesa fyrri helminginn:

„Alþingi og forseti Íslands fara með löggjafarvaldið.“

Það er ekkert smáræði. Ef við erum hér með ákvæði sem hugsanlega bryti í bága við þetta ákvæði þá er ekkert smáræðismál þar undir, frú forseti, vegna þess að þjóðin gengur til kosninga á fjögurra ára fresti og kýs sér sína fulltrúa hér inn á Alþingi sem kemur sér svo saman um meiri hluta eða þingmenn til að breyta einhverjum lögum. Ef þau brjóta í bága við stjórnarskrána fáum við það í bakið síðar. Dómstólar landsins, sem stjórnarskráin einnig tilnefnir til að dæma í málum sem höfðuð eru og gætu hugsanlega varðað réttarhæð laga, reglna og stjórnarskrár, eru bærir til þess að skera úr um það í einstökum málum sem upp kunna að koma í framtíðinni hvort einhver lagaákvæði séu þess eðlis að þau brjóti í bága við stjórnarskrá. Hvert er þeirra hlutverk þá? Hvert er hlutverk dómstólanna þegar slík mál koma til þeirra? Það er auðvitað að hafa þessi lög að engu, frú forseti, hafa þau að engu, þurrka þau út, horfa ekki til þeirra vegna þess að stjórnarskráin upphefur slík lög. Við erum einmitt núna að ræða lagaákvæði sem ekki er nú flókið, frú forseti, það er ekki flókið. Það telur fjórar línur. Það er nú ekki meira en svo. Allra handa fræðimenn og lögspekingar eru þó alls ekki á einu máli um hvort þetta brjóti í bága við stjórnarskrána. Þeir eru þó sammála um eitt og það er að það má hafa vangaveltur um það. Sumir telja að það gangi kannski ekki alveg svo langt að það brjóti stjórnarskrána. Aðrir eru vissir um að það geri það þannig að við erum hérna með úrlausnarefni sem er alveg þess virði að taka mjög djúpa umræðu um hér á þingi, hvort svo sé.

Það sem ég ætlaði kannski líka að benda á í þessari ræðu en verð að gera síðar er hversu athyglisverður þessi fyrirvari er sem er í ákvæðinu, að EES-reglur gangi framar almennum íslenskum lagaákvæðum nema Alþingi mæli fyrir um annað. Ég ætla að gera hann að umtalsefni í minni næstu ræðu.