Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég kem enn á ný eins og kallaður og fagna því að fá tækifæri til að halda áfram að fara yfir varnir Íslands í málinu sem við höfum nú aðeins farið í. Af nægu er að taka vegna þess að þær eru mjög ítarlegar og að mínu mati mjög margvísleg og skynsamleg rök sem þar voru færð fram á sínum tíma, einkum í bréfaskiptum á milli utanríkisráðuneytisins og ESA árið 2020 og 2021. Ég tel ástæðu til þess að leyfa mér, með leyfi forseta, að grípa niður í bréf sem er sent frá utanríkisráðuneytinu þarna vorið 2021 þar sem segir, vel að merkja í þýðingu sem er bara lausleg en ekki lögformleg:
„Þegar Ísland varð aðili,“ með leyfi forseta, „að EES var talið að orðalag 3. gr. EES-laganna væri nægilegt til að uppfylla skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum. Ekki er heldur unnt að ganga lengra innan þess ramma sem íslenska stjórnarskráin setur. Skýrara ákvæði um forgangsáhrif innleiddra EES-reglna myndi krefjast stjórnarskrárbreytingar.“
Þetta fullyrða íslensk stjórnvöld fullum fetum árið 2021. „Skýrara ákvæði um forgangsáhrif innlendra EES-reglna myndi krefjast stjórnarskrárbreytingar.“ Og stjórnvöld halda áfram: „Því er spurningin um hvernig raða beri EES-reglum gagnvart öðrum lagareglum; fyrst og fremst innlent stjórnarskrármál.“ Hvernig beri að raða EES-reglum gagnvart öðrum innlendum reglum er sem sagt stjórnarskrármál að mati íslenskra stjórnvalda árið 2021. Að lokum segir: „Þar af leiðandi verður að leysa málið innanlands án afskipta Eftirlitsstofnunarinnar eða EFTA-dómstólsins.“
Þetta er nokkuð ótvírætt hjá íslenskum stjórnvöldum sem líta greinilega svo á fyrir fjórum árum að þetta sé stjórnarskrármál. Þegar hv. þingmenn, t.d. Sjálfstæðisflokksins, sem velta nokkuð fyrir sér tiltölulega nýföllnum hæstaréttardómi um fæðingarorlofsmál, láta eins og þar sé komin ástæða til að við þurfum að kveða svo skýrt á um þetta eins og gert er í þessu frumvarpi, þá spyr maður sig: Ef við föllumst yfirleitt á að hæstaréttardómur sé með þessu búinn að staðfesta að innleiðingin sé ófullnægjandi, þá er það engu að síður viðhorf íslenskra stjórnvalda, alla vega árið 2021, að þetta sé innlent stjórnarskrármál. Þess vegna spyr maður sig hvort það hafi breyst að þetta sé ekki málefni fyrir ESA, ekki spurning um að EFTA-dómstóllinn taki þetta fyrir heldur sé það innlent stjórnarskrármál hvernig beri að leysa úr þessu. Þetta var sýn íslenskra stjórnvalda fyrir fjórum árum.
Hér er önnur setning sem mér þætti vænt um að fá, með leyfi forseta, að lesa upp úr þessu bréfi, þar sem segir:
„Það er óskiljanlegt að krefjast þess að Ísland breyti löggjöf sinni eða stjórnarskrá eftir 27 ára aðild að EES,“ sem var þá. „Þá ber einnig að hafa það í huga að Eftirlitsstofnunin gerði engar athugasemdir við framkvæmd Íslands á bókun 35 í tæpan aldarfjórðung. Ríkisstjórnin telur því að Eftirlitsstofnunin hafi samþykkt núverandi fyrirkomulag og geti ekki farið lengra með málið.“
Ég þekki bara ekki hvort stjórnarliðar og talsmenn þessa frumvarps hafi kynnt sér þessar varnir landsins eða hvort menn líti svo á að þær bara einfaldlega haldi ekki, vegna þess að ég sé ekki hvaða flöt menn finna á þessu til að halda því fram að þetta haldi ekki prýðilega vel. Þarna er því haldið fram af ríkisstjórn Íslands, þáverandi hæstv. utanríkisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, sem ég hef líka sagt hér í ræðustól að á lof skilið fyrir vinnslu þessa máls, óháð því sem síðar varð, að hér sé grundvallarstaðreyndum málsins haldið til haga. Það er ekki alveg tækt að gera engar athugasemdir við þessa framkvæmd um langt skeið og láta eins og það sé fullkomlega eðlilegt að gera skýlausar kröfur um að við gerum breytingar sem við sjálf lítum svo á, alla vega út frá þessum vörnum, að rúmist ekki innan stjórnarskrár. Það er alla vega sýn íslenskra stjórnvalda frá þessum tíma. Hún hefur augljóslega breyst. Maður hefur hins vegar ekki séð það formgerast að hún hafi breyst, að það sé útskýrt hvað breytist frá þessu viðhorfi og þar til nú (Forseti hringir.) óháð hæstaréttardómi. Hann breytir ekki stjórnarskránni.