Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:55]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Mig langar hér í minni fjórðu ræðu, af því að hér hefur verið minnst á fullveldi Íslands, að renna stuttlega yfir þetta hugtak sem er eitt þeirra mikilvægustu í sögu og sjálfsmynd þjóðarinnar, þ.e. fullveldi Íslands. Hvað merkir fullveldi? Það er réttur ríkis til að fara með sitt æðsta vald. Það rammast held ég nokkuð ágætlega inn í þá umræðu sem hér fer fram, að hafa fullt vald yfir öllu því sem við viljum gera. Það er alltaf spurning hvernig þessir hlutir geta farið fram. Fullveldisskilgreiningar frá síðustu öld, þar sem talað er um að fullveldi sé þá án afskipta frá erlendum aðilum, ríma kannski ekki alveg við samtímann þegar við eigum í jafnmiklum samskiptum við erlenda aðila og raun ber vitni. Mikilvægt er það nú samt að við tölum um fullveldi Íslands af ákveðinni virðingu. Tímamótin urðu á sínum tíma 1918 þegar Ísland fékk sitt fullveldi og svo var það árið 1944 að það var staðfest almennilega. Það sem ég held að sé lykilatriði í þessu er að þetta er ekki bara eitthvert sögulegt hugtak, fullveldi, heldur erum við að tala um lifandi hugtak og ég held að það sé nú kannski akkúrat það sem á við í þessu samhengi þegar við erum að fjalla um bókun 35 vegna þess að ef við fjöllum um fullveldi sem lifandi hugtak þá náttúrlega þróast það með og tekur á móti þeim áskorunum sem koma upp í hendurnar á okkur hverju sinni. Við erum kannski ekki endilega að sækjast eftir því en þegar við erum hluti af samningi eins og EES-samningnum þá held ég að það sé gríðarlega mikilvægt að við horfum til þess að fullveldið er lifandi hugtak. Þá þurfum við alltaf að horfa til þess hvernig verjum við fullveldi okkar sem best því fullveldi í dag snýst ekkert um að að loka bara landinu og segja lok, lok og læs. Þetta snýst ekki um það eða að hafa ekki samvinnu við aðrar þjóðir. Þetta snýst um að standa bara með reisn og það er mikilvægt fyrir okkur að við erum sjálfstæð þjóð í eigin landi. Við viljum að það sé litið á okkur þannig. Þegar við erum í þessu alþjóðasamfélagi sem við lifum og hrærumst í á hverjum einasta degi finnst mér það vera svona lykilatriði, frú forseti, að þegar við fjöllum um fullveldi felist mikilvægið í því að við erum sjálfstæð þjóð í eigin landi og að við tökum okkar ákvarðanir sjálf. Vissulega er það þó einnig mikilvægt, þegar við þurfum að eiga við samninga eins og EES-samninginn, að við tökum ekki bara við öllum þeim tilskipunum sem koma heldur eigum við að semja. Við eigum að semja um alla þá hluti og hafa áhrif á allt sem kemur frá Brussel. Við eigum að hafa skoðun á því öllu saman. Ég tel því mjög mikilvægt í þessu samhengi að við fjöllum um fullveldið af virðingu og stöndum vörð um fullveldi þjóðarinnar. Bókun 35 á ekki að vera þannig innleidd að fullveldi Íslands sé í hættu. Ég held að það sé lykilatriði. Ég hef ekki hingað til í þeirri orðræðu sem hér hefur verið hætt mér mikið út á þær brautir að ræða um stjórnarskrá enda er viðkvæmt að ræða hana í ljósi fyrri atburða í dag. (Forseti hringir.)

Virðulegur forseti. Ég held að ég láti máli mínu lokið varðandi fullveldi Íslands.