Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[15:00]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Ég hafði í hyggju að halda hér áfram með yfirferð mína yfir varnir Íslands en í ljósi þessarar ágætu ræðu sem hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson var að enda við að flytja hér þá datt mér í hug að fara aðeins aðra leið núna og taka við þessu fullveldiskefli og tengja við hugtakið staðfesta. Ég mun svo, frú forseti, halda aftur áfram í næstu ræðu yfirferð minni um varnir Íslands. Mig langar að vitna hér, með leyfi, frú forseti, í andsvar þáverandi hv. þm. Eyjólfs Ármannssonar, núverandi hæstv. ráðherra, sem átti sér stað 7. mars 2024:

„Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir skýrsluna. Ég var því miður ekki viðstaddur hina sérstöku umræðu um bókun 35, ég hefði gjarnan viljað vera það. Ég er með spurningu til hæstv. utanríkisráðherra sem er þessi: Hvernig getur það staðist stjórnarskrá að setja almenn lög, reglur, um það að ákveðin lög með ákveðinn uppruna gangi framar öðrum lögum, þ.e. lög með uppruna í Brussel, lög með uppruna í bókun 35 og lög sem eiga uppruna sinn í tilskipunum og reglum ESB sem eru innleiddar á Íslandi og gerð að lögum? Hvernig getur það staðist stjórnarskrá að þannig lög verði samþykkt á Alþingi Íslendinga og bindi hendur löggjafans til framtíðar, að ein almenn lög gangi framar öðrum almennum lögum? Hvernig stenst það stjórnarskrá?

Ég er með margar aðrar spurningar fyrir hæstv. utanríkisráðherra og þá kemur spurning númer tvö. Núna hefur EES-samningurinn, sem er 30 ára gamall, verið uppfærður. Evrópusambandið hefur farið í svokallaðar sáttmálabreytingar. Það var farið í Maastricht-sáttmálann rétt fyrir gildistöku innri markaðar EES-samningsins, það var farið í Amsterdam-sáttmálann 1999, Nice-sáttmálann 2003 og Lissabon-sáttmálann 2009 þar sem orkusamband Evrópu á uppruna sinn í 194. gr. Öll ESB-ríkin þurftu að samþykkja þessar sáttmálabreytingar, öll ríkin þurftu að samþykkja þessa sáttmála, m.a. í þjóðaratkvæðagreiðslum. Næsta sáttmálabreyting mun verða strategísk. Hvernig stendur á því að Ísland, EFTA-megin, fékk ekki að samþykkja þessar breytingar sáttmálamegin? Verður ekki gerð krafa um það við næstu sáttmálabreytingu að Ísland samþykki þá sáttmálabreytingu sem verið er að gera á innri markaðinum m.a.?“

Þá kemur niðurlagið, frú forseti:

„Það er algjörlega óþolandi að við séum að sogast inn í samrunaþróun Evrópusambandsins með þessum hætti, með þessum sáttmálabreytingum, án þess að hafa nokkuð um málið að segja.“

Þetta er, frú forseti, orðrétt haft eftir hæstv. ráðherra þannig að við erum ekki hér að ræða einhverjar minni háttar breytingar á afstöðu. Við erum, og ég mun sýna fram á það í fleiri ræðum seinna í dag, að sýna fram á hvernig, mér liggur við að segja, einn ráðherrastóll getur, jafnvel í máli sem ekki er inni í stjórnarsáttmálanum, kallað fram algjöra U-beygju, 180° beygju í afstöðu, nánast yfir nótt. Ég hef reyndar sýnt fram á í öðrum ræðum hér, og get endurtekið ef þingmenn óska þess, að eftir að þetta átti sér stað þá hefur hæstv. ráðherra reyndar sagst alls ekkert hafa skipt um skoðun. Í talsvert ítarlegum pistli sem ég fór með hér, ég hygg að það hafi verið í gær, ég hygg að hafi verið fyrir miðnætti, kann að vera að það hafi verið eftir miðnætti, þar sem hæstv. ráðherra leggur af stað úr 180° í einhverja allt aðra gráðu, líklega bara 360° — ég fæ ekki betur séð á þeirri yfirferð. Þær upplýsingar má nálgast á vef sem heitir stjornmalin.is, þar eru því ítarlega gerð skil hvurs lags hringavitleysu hægt er að búa til til að réttlæta það að ekki skipta um skoðun, því að það kemur fram í þeim pistli að hæstv. ráðherra skiptir alls ekki um skoðun, heldur ætlar engu að síður að styðja mál sem hann staðfestir að hann er enn á móti.