Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 60. fundur,  13. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[15:06]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég var hér í fyrri ræðu minni í dag í rauninni á upphafspunkti, svolítið á núllstillingu í þágu umræðunnar og var að fjalla um það hvert tilefni þessa máls væri. Mér hefur þótt menn kannski ekki alveg átta sig á því, einkum almenningur sem er að fylgjast með þessari umræðu, af hverju þetta mál er komið hingað og af hverju það liggur svona mikið á að afgreiða þetta að því er virðist af hálfu ríkisstjórnarflokkanna sem ég nefndi að hafa ekki þetta tiltekna mál í yfirlýsingu sinni um þau málefni sem þau leggja áherslu á, þ.e. í ríkisstjórnarsáttmálanum er hvergi minnst á þetta tiltekna mál. En allt að einu þá er það hingað komið og ég var að fara yfir það að fyrir 30 árum þegar við gengum í hið svokallaða EES-samstarf, þ.e. tókum upp EES-samninginn, var stefnt að því að mynda einsleitt Evrópskt efnahagssvæði. Forsenda fyrir slíkri einsleitni er að löggjöfin sem fjallar um fjórfrelsið svokallaða, sem EES-samningurinn tekur til, að þær reglur eigi að vera eins hér á Íslandi og í öllum ríkjum sem aðild eiga að EES-svæðinu og Evrópska efnahagssvæðinu, sem eru þá Evrópusambandsríkin ásamt Íslandi, Noregi, Liechtenstein og upphaflega var Sviss þar líka en Sviss er nú horfið úr þessu samstarfi. Þetta er áhersla og svona meginstef EES-samningsins, þessi einsleitni, og þá kemur auðvitað upp spurningin hvernig það verði tryggt. Þar kemur einmitt bókun 35, með EES-samningnum fylgja margar bókanir og það er rétt að taka það fram að bókanir við EES-samninginn teljast óaðskiljanlegur hluti samningsins og hafa sömu stöðu og meginmál samningsins að þjóðarétti, það er það sem skiptir miklu máli. Bókun 35 fjallar sem sagt í meginatriðum um þá skyldu EFTA-ríkjanna innan EES að tryggja stöðu innlendra EES-reglna að landsrétti. Hvað Ísland varðar þá þýðir það að Ísland verður að innleiða samkvæmt íslenskum reglum og íslenskri stjórnskipan, innleiða reglur á þessu tiltekna sviði sem EES-samningurinn fjallar um. Það eru alls ekki allar reglur Evrópusambandsins, það er langt í frá. Það eru bara reglur sem varða hið svokallaða fjórfrelsi, þ.e. reglur er lúta að frjálsri för fólks, frjálsri för fjármagns, frjálsri för vöruviðskipta milli landa og frjálsri þjónustu á milli landa. Það er stundum misskilningur í umræðunni hér þegar kemur að umræðu um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þá nefna menn það oft að Ísland þurfi nú þegar hvort eð er að innleiða allar reglur Evrópusambandsins en það er alls ekki þannig. Það eru bara þær reglur sem lúta að þessu fjórfrelsi. Það eru t.d. ekki reglur á sviði skattaréttar og ekki reglur á sviði utanríkismála. Það skiptir miklu máli að menn hafi þetta í huga.

Spurningin er hins vegar hvernig Ísland innleiðir þessar reglur. Í Evrópusambandsríkjunum er það þannig að Evrópusambandsríkin þurfa ekki að viðhafa neina sérstaka innleiðingu á reglum Evrópusambandsins. Evrópusambandið setur bara reglur, þ.e. framkvæmdastjórn Evrópusambandsins setur ákveðnar reglur, tekur upp reglur sem eftir atvikum Evrópuþingið hefur fjallað um og Evrópuþingið setur og þær reglur hafa sjálfkrafa gildi í Evrópusambandsríkjunum. En þegar kemur að EES-samningnum gagnvart Íslandi þá þarf Ísland að innleiða þessar reglur sérstaklega og gerir það þá með þeim hætti sem íslensk stjórnskipan kveður á um.

Ótrúlegt en satt þá er ræðutímanum hér lokið og ég rétt byrjuð (Forseti hringir.) en bið virðulegan forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá svo ég geti aðeins reifað þessa stjórnskipulegu framkvæmd Íslands á innleiðingu á þessum reglum.