156. löggjafarþing — 61. fundur,  15. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[00:12]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Hér hafa komið fram nokkrar spurningar. Fyrst um það hversu lengi þessi fundur skuli standa. Það er ekki ljóst á þessari stundu, enda er forseti að reyna að átta sig á því hversu lengi hv. þingmenn vilja halda áfram þessari umræðu í 2. umræðu um það þingmál sem hér er á dagskrá. Það er ekki alveg gott að skilja hvort hv. þingmenn vilji halda áfram eða hvort þeir vilji hætta, af því að forseti skilur það einnig þannig að það séu hér önnur mál á dagskránni sem þingmenn vilji mjög gjarnan ræða, þannig að það er erfitt að átta sig á þessari stöðu. Ég get greint frá því að ég hef sent skilaboð á hv. þingflokksformenn um að það komi til greina að halda þingfund á morgun. Það hefur ekki verið ákveðið þannig að það sé alveg á hreinu.

Hvað varðar hvíldardaginn þá er hann vissulega haldinn heilagur víða um heim, ekki alltaf á sunnudögum, stundum á laugardögum og stundum á föstudögum. Sunnudagur er fyrsti dagurinn í vikunni, góður til vinnu og góður til heillahugsana. Við skulum bara sjá hvað verður. Þetta er í höndum hv. þingmanna.