Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Af hverju kemur það ekki á óvart að forseti Alþingis, úr röðum Samfylkingarinnar, vísi hér, í svari til þingmanns hér í þingsal við spurningu sem lýtur að hvíldardegi á sunnudegi, af hverju kemur það ekki á óvart að forseti vísi í frídag múslima? Múslima? Að þingmenn hér geti bara tekið sér frí með múslimum á föstudögum eða gyðingum á laugardögum. Af hverju kemur þetta ekki á óvart?
Þess utan hefur virðulegur forseti ekki svarað spurningunni þar sem hefur ítrekað verið spurt: Er ætlunin hér að halda fund? Þá er vísað í tölvuskeyti sem er sent þingflokksformönnum allra flokka hér. Eftir miðnætti, þegar kominn er sunnudagur, sendir virðulegur forseti skeyti um að forseti sé að hugsa um að halda fund á morgun. Á morgun? Á morgun er kominn, morgunninn er kominn. Ég hlýt að spyrja aftur: Er ætlunin að halda hér áfram þingfundi fram að messutíma og jafnvel fram yfir það hér á þessum hvíldardegi? Ég ítreka þessa spurningu.