Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Það er mér mjög á móti skapi að taka þátt í umræðu hér á sunnudegi en það er svo sem í anda þessarar ríkisstjórnar sem hefur núna sýnt á spilin, að hún ætlar að halda áfram þar sem frá var horfið frá síðustu vinstri stjórn þar sem „woke“-isminn reið ekki við einteyming. Og hér er vísað í hvíldardaga múslima þegar bent er á að Alþingi Íslendinga hefur ekki fundað á sunnudögum. Það eru kannski hin nýju siðaskipti, eins og hefur verið bent á hér undir liðnum fundarstjórn forseta. Það mætti líta á það eins og það væru ný siðaskipti hér þar sem það er boðað að menn geti bara tekið sér sinn frídag til að iðka sína trú á frídögum múslima. Það er kannski við hæfi og í samræmi við stefnu þessarar ríkisstjórnar í öðrum málum sem hún vill undirbúa þetta allt saman og kannski í samræmi við þessa áherslu sem þessi ríkisstjórn leggur á það að koma þessu máli um bókun 35, um forgangsreglur Evrópusambandsins, inn í íslenskan rétt í samræmi við það vegna þess að markmiðið í framhaldinu eru auðvitað aðildarviðræður við Evrópusambandið. Og hversu mjög myndi það ekki auðvelda ríkisstjórninni að telja þjóðinni trú um það að aðildarviðræður og í framhaldinu innganga í Evrópusambandið væri létt og löðurmannlegt verk og einboðið að stíga það skref í því ljósi að hér hefðu reglur Evrópusambandsins hvort eð er forgang á íslenskan rétt að öllu leyti?
Þetta, virðulegur forseti, er auðvitað meginmarkmiðið með bókun 35, því frumvarpi sem liggur nú fyrir. Mér finnst að ríkisstjórnin eigi bara að vera heiðarleg með það og ræða þetta mál á þeim nótum, upplýsa þjóðina, að þetta sé einmitt skrefið sem þessa ríkisstjórn dreymir um, skrefið inn í Evrópusambandið. Það verður ekki öðruvísi hægt að túlka þessa ofuráherslu ríkisstjórnarinnar á þetta tiltekna þingmál hér undir lok þingvetrar, löngu eftir að þinginu átti að vera lokið samkvæmt starfsáætlun sem þessi sama ríkisstjórn setti, ekki þingmenn stjórnarandstöðunnar heldur þessi tiltekna ríkisstjórn sem nú er að störfum hér og hefur völdin hér í þessu landi, setti þinginu. Þessi starfsáætlun var hönnuð af þessari ríkisstjórn sem hefur ekki getað staðið við hana. Það liggur fyrir. Þrátt fyrir það leggur hún ekki áherslu á að reka þau mál sem hún hefur á tyllidögum látið í veðri vaka að væru hennar meginmál, mál eins og málefni fatlaðra og öryrkja, hunda og katta, veiðigjöld, strandveiðimennirnir. Aumingja strandveiðimennirnir sem eru að veiða og bíða eftir að fá að vita hvað þeir geti nú veitt mikið, eða þeir veiða svo sem eins og þeir geta en þurfa kannski að vakna upp við þann draum á næsta ári að þurfa að borga fyrir ofveiðina þennan veturinn af því að ríkisstjórnin hefur ekki komið málum hér í gegn sem gerir ráð fyrir þeirri mokveiði sem strandveiðimönnum var lofað hér í apríl þegar strandveiðitímabilið var að hefjast og menn sóttu um leyfi til að veiða, fullir væntinga um aukinn afla, auknar aflaheimildir, eins og ríkisstjórnin hafði talað verulega fjálglega um en stendur núna uppi slypp og snauð hvað efndir um það varðar og er enn þá að vinna að máli til að skítredda því, eins og kallað er, máli sem sér ekki fyrir endann á í afgreiðslu í hv. atvinnuveganefnd. Allt þetta kjarnast kannski í þeim forgangi sem settur er hér á umræðu um bókun 35 og þau nýju siðaskipti sem hér hafa orðið að hér er fundað á sunnudögum og þingmönnum vinsamlegast bent á að þeir geti haldið hvíldardaginn heilagan á föstudögum með öllum múslimunum sem hefur skolað á land hér á Íslandi. Og Samfylkingin og Viðreisn og Flokkur fólksins ætla svo sannarlega að tryggja þessa verulegu inngildingu, ekki múslimanna heldur hv. alþingismanna sem geta verið boðnir velkomnir á hvíldardag múslima á föstudögum.