156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

þingfundur á sunnudegi.

[13:01]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Hér hefur verið tekin sú fordæmalausa ákvörðun að boða til þingfundar á sunnudegi án þess að nokkur brýn utanaðkomandi nauðsyn kalli á það og án þess að það sé rætt einu orði við þingflokksformenn. Þingsköp, hefðir og fordæmi þingskapa skipta máli í lýðræðisríki. Þau skipta máli og forseti alls þingsins verður að tryggja að Alþingi sé ekki stjórnlaust þótt verkstjórn ríkisstjórnarinnar sé það. Forseti verður að tryggja að þingið sé ekki stjórnlaust þótt ríkisstjórnin sé það. Það má ekki, frú forseti.