156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

þingfundur á sunnudegi.

[13:02]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Nú er það þannig hér á Íslandi að fjöldi starfsstétta bregst gjarnan við þeirri stöðu sem upp er komin í samfélaginu hverju sinni. Það er hluti af vinnu venjulegs fólks í mjög mörgum tilvikum. Við getum nefnt að fólk í sjávarútvegi þarf stundum að bregðast við. Það þarf bændastéttin stundum að gera. Það þarf fólk í byggingageiranum að gera og það þarf fólk í heilbrigðiskerfinu að gera. Mér finnst ekki góð skilaboð til almennings frá þinginu, svo að ég lýsi bara minni persónulegu skoðun, að það sé eitthvað óeðlilegt þegar búið er að vera mikið málþóf í gangi að þingmenn mæti í vinnuna á sunnudögum. Það er auðvitað þannig að þingstörfin ganga óskaplega hægt. Það er andlýðræðislegt að stjórnarandstaðan geti stöðvað mál, stöðvað að mál komist til afgreiðslu með því einu að tala út í eitt. Ég styð þessa ákvörðun forseta Alþingis.