þingfundur á sunnudegi.
Virðulegi forseti. Mér þótti örlítið sárt að heyra í frammíköllum í gær að fundið var að því að ég hafi ekki verið viðstaddur alla umræðu um bókun 35. Mér reiknast svo til að ég hafi verið viðstaddur u.þ.b. 85% af þeirri umræðu og restinni hef ég reynt að fylgjast með heiman frá eins og bitrar æviminningar barna minna munu staðfesta. En ég er með hugmynd að því hvernig við getum lokið þessu máli. Ég er hér með ræðu þar sem ég bregst við flestu af því sem komið hefur fram af hálfu gagnrýnenda málsins. Ég myndi leggja til að ég myndi flytja þessa ræðu hér í dagsbirtu fyrir fullum sal. Síðan gætu þingmenn komið í andsvör við framsögumann og síðan gæti framsögumaður 1. minni hluta lokað umræðunni svo sómi sé að. Ég held að það færi vel á því að við myndum ljúka þessu mikilvæga máli með þessum hætti frekar en að draga umræðuna enn frekar.