156. löggjafarþing — 62. fundur,  15. júní 2025.

þingfundur á sunnudegi.

[13:04]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég get alveg skilið það að alþingismenn þurfi að vinna á sunnudögum, sérstaklega þegar kemur að þinglokum. Það er bara minnsta mál. En ég vil benda á það að þegar verið er að halda þingfundi svona lengi þá er líka fullt af öðru starfsfólki og öðrum aðilum sem þurfa að koma að þessu og annað slíkt. En það sem ég furða mig kannski frekar á er af hverju við erum að halda þennan þingfund á sunnudegi. Það er út af því að hér hefur mikið verið rætt mál sem var afgreitt fyrir tveimur mánuðum út úr þingnefnd og ég sé ekki hvað kallar á að það klárist hér á næstu dögum. Það er búinn að vera nægur tími hjá virðulegum forseta að setja það mál á dagskrá. Ég held að þingmenn ættu frekar að nýta þennan sunnudag í að fá gesti í atvinnuveganefnd til að fjalla þar betur um mál, eins og Skattinn sem sér um reikninga á veiðigjöldum og öðru slíku. Ég held að tíminn væri betur nýttur í það hér á sunnudegi.